UM SKÝRSLUNA
Nákvæmur leiðarvísir
Sjálfbærniskýrsla FISK Seafood samstæðunnar er birt samhliða ársuppgjöri hennar. Í skýrslunni er fjallað um ófjárhagslega þætti starfseminnar og nær hún yfir rekstur samstæðu FISK Seafood ehf. nema annað sé tekið fram. Skýrslan er unnin samkvæmt leiðbeiningum Samtaka atvinnulífsins, Viðskiptaráðs Íslands og Staðlaráðs Íslands auk UFS leiðbeininga Nasdaq kauphallarinnar, útgáfu 2.0 frá febrúar 2020 (ESG Reporting Guide 2.0).
Skýrslan tekur til ársins 2022 þar sem upplýsingar og mælingar eru byggðar á gögnum og þekkingu sem fyrirtækið hefur undir höndum á þeim tímapunkti sem skýrslan er skrifuð. Hún er ekki tæmandi yfir þau áhrif sem fyrirtækið hefur á samfélag, umhverfi og efnahag. Skýrslan hefur ekki verið endurskoðuð af þriðja aðila.
Skýrslan er yfirgripsmikill og nákvæmur leiðarvísir þar sem m.a. er tekið á umhverfismálum, sjálfbærri nýtingu fiskistofna, starfsreglum stjórnar, jafnréttismálum, persónuvernd, öryggismálum, mannréttindum, virðingu, innra eftirliti, áhættustýringu o.fl.
Ritstjórn: Friðbjörn Ásbjörnsson, Guðrún Sighvatsdóttir, Kristinn Kristófersson, Stefanía Inga Sigurðardóttir og Sunna Dögg Þorsteinsdóttir.
Ljósmyndir: Davíð Már Sigurðsson
Útgefið: Maí 2023
„Þess vegna ber okkur að sýna hinu villta lífi hafsins virðingu og varðveita orðspor þess eftir fremsta megni