Stjórn og stjórnarhættir

Skýrar verklagsreglur

Stjórn og forsvarsmenn FISK Seafood kappkosta góða stjórnarhætti sem ráðast einkum af starfsreglum stjórnar, samþykktum félagsins og lögum nr. 138/1994 um einkahlutafélög. 

Stjórn félagsins sendir frá sér stjórnarháttayfirlýsingu ár hvert sem er birt samhliða ársreikningi. Stjórnarháttayfirlýsingin er þáttur í innleiðingu góðra stjórnarhátta hjá félaginu með það fyrir augum að styrkja innviði þess og auka gagnsæi í starfseminni. Góðir stjórnarhættir leggja grunninn að vandaðri stjórnun og ákvarðanatöku og stuðla að traustum samskiptum á milli eigenda, stjórnar, stjórnenda og annarra hagaðila.

Aðalfundur kýs árlega fimm aðalmenn í stjórn og fimm til vara. Stjórnarmenn eru kosnir til eins árs í senn. Stjórn ber ábyrgð á því að starfsemi félagsins sé í samræmi við lög og reglur sem um félagið gilda og góða viðskipta- og stjórnarhætti. Stjórnin sinnir stefnumótun og töku stærri ákvarðana í rekstri félagsins í samræmi við starfsreglur stjórnar. Stjórn skal einnig hafa eftirlit með bókhaldi og fjárreiðum félagsins. Í stjórn félagsins sitja þrír karlar og tvær konur og uppfyllir félagið því ákvæði laga um kynjahlutföll í stjórnum stórra félaga. 

Stjórn og framkvæmdastjóri félagsins eru ábyrg fyrir því að til staðar sé fullnægjandi innra eftirlit og áhættustýring hjá félaginu. Markmið stjórnar með innra eftirliti og áhættustýringu er að stuðla að því að félagið nái markmiðum sínum varðandi tilgang og skyldur félagsins, afkomu og áreiðanleika fjárhagsupplýsinga auk þess að starfsemin sé í hvívetna í samræmi við lög og reglur. Áhættustýring felur í sér reglulegt innra eftirlit þar sem fjárhagslegar áhættur eru greindar, vaktaðar og kynntar á stjórnarfundum. Helstu fjármálalegu áhættur sem hafa áhrif á félagið eru gjaldmiðlaáhætta, vaxtaáhætta og lausafjáráhætta.

Innra eftirlit FISK Seafood byggir á skýru skipulagi og aðgreiningu starfa. Unnið er að skilgreiningu og skjölun ferla sem mynda virkar eftirlitsaðstæður. Reglubundin uppgjör eru mikilvægur hluti innra eftirlits og er fylgst með gæðum upplýsinga og helstu kerfa. Stjórn FISK Seafood ber ábyrgð á innra eftirliti en endurskoðunarnefnd starfar í umboði stjórnar og fylgist m.a. með skilvirkni innra eftirlits til samræmis við skyldur sínar.

Árið 2022 komu ekki upp nein frávik frá leiðbeiningum um góða starfshætti. Engin mál komu upp vegna brota á lögum og/eða reglum sem viðeigandi eftirlits- og eða úrskurðaraðilar hafa ákvarðað.

Stjórn og starfsfólk skulu starfa af heiðarleika og heilindum, kynna sér vel þau lög og reglur sem gilda um starfsemi félagsins og hafa skilning á hlutverki sínu og ábyrgð samkvæmt starfsreglum stjórnar. Árið 2020 setti félagið sér siðareglur þar sem meðal annars er fjallað um gjafir og hagsmuni. Það er okkur mikið kappsmál að stunda heiðarleg viðskipti og að við veitum hvorki né þiggjum fjárhagslega umbun sama hverjar aðstæðurnar eru og sama hver á í hlut.

Stjórnin hefur sett sér starfsreglur þar sem meðal annars er að finna ákvæði um skiptingu starfa innan stjórnar, verksvið stjórnar, stjórnarformanns og framkvæmdastjóra, verklag og reglur um fundarsköp, upplýsingagjöf og fleira. Hver stjórnarmaður skal koma í veg fyrir að málefni hans, hvort heldur sem eru persónulegs eða viðskiptalegs eðlis, leiði til beinna eða óbeinna hagsmunaárekstra milli hans og félagsins samkvæmt ákvæðum starfsreglna stjórnar. Siðareglurnar eru aðgengilegar á heimasíðu félagsins.

Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins. Formaður stjórnar er málsvari hennar og kemur fram fyrir hennar hönd varðandi málefni félagsins, nema hún ákveði annað. Einnig kemur formaður fram út á við fyrir hönd félagsins ásamt framkvæmdastjóra í samræmi við það sem almennt tíðkast og eftir aðstæðum hverju sinni.

Á starfsárinu 2022 voru haldnir 12 stjórnarfundir. 

image description

Stjórn

Þórólfur Gíslason, fæddur 1952, hefur setið í stjórn FISK Seafood frá árinu 1989 og er stjórnarformaður félagsins. Þórólfur er með stúdentspróf frá Samvinnuskólanum á Bifröst og hefur starfað sem kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga síðan 1988. Þórólfur hefur víðtæka stjórnunar- og rekstrarreynslu.

Ingileif Oddsdóttir er fædd 1964 og hefur setið í stjórn FISK Seafood frá árinu 2011. Ingileif er með BA-gráðu í sálfræði og kennsluréttindi í uppeldis- og kennslufræðum, meistaragráðu í náms- og starfsráðgjöf og með MA gráðu í opinberri stjórnsýslu. Hún hefur verið skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra frá árinu 2011. Áður starfaði hún sem framhaldsskólakennari og náms- og starfsráðgjafi. 

Bjarni Maronsson er fæddur 1949. Hann hefur setið í stjórn FISK Seafood frá árinu 2011, fyrst sem varamaður í stjórn en aðalmaður síðan 2012. Bjarni er með B.Sc. próf í búvísindum frá Bændaskólanum á Hvanneyri auk þess að vera búfræðingur frá Hólum í Hjaltadal. Bjarni var lengst af héraðsfulltrúi Landgræðslu ríkisins á Norðurlandi vestra sem starfsmaður Búnaðarsambands Skagfirðinga auk þess sem hann sinnti kennslu og fleiri verkefnum tengdum landbúnaði og bústörfum.

Herdís Á Sæmundardóttir er fædd 1954 og hefur setið í stjórn FISK Seafood frá árinu 2013. Herdís er með MA gráðu í opinberri stjórnsýslu og hefur starfað sem sviðsstjóri fjölskyldusviðs hjá sveitarfélaginu Skagafirði frá 2008. Áður starfaði hún sem fræðslustjóri hjá sveitarfélaginu Skagafirði auk þess að gegna stöðu stjórnarformanns Byggðastofnunar og formennsku í  ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Sigurjón R. Rafnsson er fæddur 1965 og hefur verið aðalmaður í stjórn FISK Seafood frá árinu 1996. Sigurjón er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, búfræðingur frá Hólum í Hjaltadal og viðskiptafræðingur með cand.oecon gráðu frá Háskóla Íslands. Sigurjón hefur starfað frá 1993 hjá Kaupfélagi Skagfirðinga svf. og verið aðstoðarkaupfélagsstjóri frá árinu 1995. Sigurjón hefur víðtæka rekstrarreynslu hjá KS og dótturfélögum og einnig sem stjórnarmaður í mörgum fyrirtækjum.

Framkvæmdastjóri

Friðbjörn Ásbjörnsson er framkvæmdastjóri FISK Seafood. Hann er fæddur árið 1984 og uppalinn við sjóinn á Snæfellsnesi. Friðbjörn brautskráðist frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla og hefur m.a. lokið námi við Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík fyrir stjórnendur í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Friðbjörn er með skipstjórnar- og vélstjóraréttindi. Hann hóf ásamt bræðrum sínum störf við útgerðarfyrirtæki foreldra sinna, Nesver, strax á unglingsárum. Meðfram námi sínu til stúdentsprófs og að því loknu starfaði hann einnig að uppbyggingu og rekstri fiskmarkaða og vann við kvótamiðlun um árabil. Friðbjörn hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Soffaníasar Cecilssonar ehf. frá 2017 og framkvæmdastjóra FISK Seafood frá 2018 eftir að hafa starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri hjá félaginu.

Endurskoðunarnefnd

Gunnar Þór Ásgeirsson – Formaður nefndar

Herdís Á Sæmundardóttir

Ingileif Oddsdóttir

Þekkingin sem fólgin er í mannauði sjávarútvegsins til sjós og lands er sjálfstæð auðlind og langt í frá minni en sú sem syndir í lögsögunni