Starfsemin
Veiðar
Samstæða FISK Seafood gerir út fimm togara, eitt línuskip og einn smábát. Einnig á félagið 60% eignarhlut í Steinunni ehf. sem gerir út samnefndan dragnótarbát frá Ólafsvík.
Arnar HU-1 er smíðaður í Langsten Slip árið 1986 og er á sjófrystingu. Áhöfn skipsins samanstendur af 54 einstaklingum sem skipta róðrum á milli sín. Yfirleitt rær hvor áhöfn í 25-35 daga í senn og tekur svo sambærilega langt frí. Skipstjórar eru Guðmundur Henrý Stefánsson og Guðjón Guðjónsson.
Málmey SK-1 er smíðuð í Flekkafjord slipp og Mask árið 1987. Í áhöfn eru 25 einstaklingar sem skipta róðrum á milli sín, en fimmtán eru um borð á hverjum tíma. Skipstjórar eru Björn Jónasson, Þórarinn Hlöðversson og Hermann Einarsson. Þorskur og ufsi fer að langmestu leyti til vinnslu á Sauðárkróki en annar afli fer á markað.
Drangey SK-2 er smíðuð í Cemre Shipyard árið 2017. Í áhöfn eru 25 einstaklingar sem skipta róðrum á milli sín með sama hætti og gert er á Málmey og með jafnmarga um borð hverju sinni. Skipstjórar eru Ágúst Óðinn Ómarsson og Halldór Þorsteinn Gestsson. Mestur hluti þorsk- og ufsaafla fer til vinnslu á Sauðárkróki en annar afli fer á markað.
Sigurborg SH-12 er smíðuð af Nordship árið 2007. Skipið kom inn í rekstur Soffaníasar Cecilssonar haustið 2019 og er gert út frá Grundarfirði. Í áhöfn eru tólf einstaklingar og eru níu um borð hverju sinni. Skipstjóri er Ómar Þorleifsson. Mestur hluti þorsks og ufsa fer til vinnslu hjá Soffaníasi Cecilssyni en eftir atvikum einnig á Sauðárkók. Annar afli er settur á markað.
Farsæll SH-30 er smíðaður af Ching FU Shipbuilding Co Ltd. árið 2009. Skipið kom inn í rekstur FISK Seafood haustið 2019 og er gert út frá Grundarfirði. Eins og á Sigurborgu eru tólf í áhöfn og níu þeirra til sjós hverju sinni. Skipstjóri er Guðmundur Snorrason. Mestur hluti þorsks og ufsa fer til vinnslu hjá Soffaníasi Cecilssyni í Grundarfirði en einnig er aflinn stundum tekinn til vinnslu á Sauðárkóki. Annar afli er settur á markað.
Steinunn SH-167 er dragnótarbátur sem smíðaður var í Stálvík árið 1971. Í áhöfn eru níu einstaklingar sem skipta með sér róðum og er skipið gert út frá Ólafsvík. Skipstjóri er Oddur Brynjarsson og fer allur afli á fiskmarkað. Áætlað er að Steinunn ehf. verði komið að fullu inn í rekstur samstæðu FISK Seafood á næstu kvótaáramótum. Steinunn er því þetta árið einungis að hluta til í sjálfbærniskýrslu samstæðunnar. Starfsfólk Steinunnar er talið með í starfsmannafjölda samstæðunnar og rekstrartekjur félagsins koma fram í ársreikningi og sjálfbærniskýrslu fyrir starfsárið 2022.
Tryggvi Eðvarðs SH-3 er krókabátur smíðaður í Hafnarfirði og Póllandi árið 1999. FISK Seafood leigir skipið og kvóta þess og gerir það út frá Ólafsvík. Í áhöfn eru 8 einstaklingar sem skiptast á um vinnu í u.þ.b. tveggja vikna löngum róðrartímabilum. Skipstjórar eru Gylfi Scheving Ásbjörnsson og Friðrik Ólafsson. Stærstur hluti þorsks- og ufsaaflans fer til vinnslu hjá Soffaníasi Cecilssyni en annar afli er settur á markað.
Lundey SK-3 er smíðuð af Trefjum árið 2007. Í áhöfn eru 3 einstaklingar sem stunda tilraunaveiðar í Skagafirði. Skipstjóri er Ásbjörn Óttarsson. Afli bátsins fer ýmist til vinnslu hjá FISK Seafood eða á markað.
Kvótaskerðingar síðustu ára hafa reynst félaginu áskorun en hingað til hefur tekist að halda fullri starfsemi án þess að leggja skipum eða loka vinnslum. Mikill niðurskurður varð í botnfiskheimildum samstæðunnar kvótaárið 22/23, eða 6% í þorski og 20% í gull- og djúpkarfa. Aukning í ýsu nam hins vegar 23%. Frá kvótaárinu 20/21 til 22/23, hafa úthlutaðar heimildir samstæðunnar í þorski verið skertar um 20%, í gullkarfa um 39% og djúpkarfa um 49%. Einnig hefur stríðið í Úkraínu sett sitt strik í reikninginn því frystitogarinn Arnar missti ígildi tveggja mánaða verkefna þegar kvóti skipsins var að fullu afnuminn á yfirráðasvæði Rússa í Barentshafi og í norska hluta Barentshafsins var hann skertur til muna.
„Fyrir þekkingunni þurfum við ekki aðeins að bera virðingu heldur hafa það líka hugfast að hún endurnýjast ekki af sjálfu sér
Vinnsla
FISK Seafood er með starfsstöðvar á Sauðárkróki og í Grundarfirði. Á Sauðárkróki er rekin bolfiskvinnsla sem vinnur þorsk og ufsa í léttsaltaðar afurðir sem markaðsettar eru á Spáni og í Brasilíu. Einnig er rekin þurrkstöð sem þurrkar hausa og hryggi sem falla til bæði í landvinnslunni á Sauðárkróki og einnig hjá Soffaníasi Cecilssyni í Grundarfirði. Hjá SC er framleiddur hefðbundinn saltfiskur og er hráefnið einkum þorskur, ufsi og langa. Árið 2022 voru tekin til vinnslu 9.387 tonn af fiski á Sauðárkróki og 3.085 tonn á Grundarfirði sem skiluðu rúmum 7,4 milljörðum króna í tekjur. Þurrkhúsið skilaði af sér 860 tonnum af afurðum.
Á myndunum hér að neðan má sjá þróun á hráefni til vinnslu frá 2018-2022. Áður var langstærsti hluti framleiðslunnar unninn fyrir stóreldhús og veitingastaði. Á meðan á heimsfaraldrinum stóð rifaði félagið seglin og breytti um áherslur með því að auka framleiðslu á smærri flökum fyrir smásölumarkaðinn þegar hótelum og veitingastöðum var gert að loka. Tekið var inn meira af ódýrari tegund (ufsa) til vinnslu til að koma til móts við þolmörk í verði. Það sem hefur einnig áhrif á magn til vinnslu eru kvótaskerðingar og hátt verð á fiskmörkuðum.
Þróun á hráefni
Gæðamál
FISK Seafood selur langstærstan hluta afurða sinna á erlendan markað og þar skiptir miklu máli að kröfum um gæði og stöðugleika sé mætt í hvívetna. Heilnæmi afurðanna og rekjanleiki þeirra er kaupendum mjög hugleikinn og stendur Ísland framarlega í þeim efnum. Hjá FISK Seafood er unnið eftir kerfi sem tryggir með óyggjandi og gagnsæjum hætti rekjanleika afurða frá veiðum til kaupenda. Hefur félagið hlotið tvennskonar vottun, annars vegar MSC og hins vegar IRF, á áreiðanleika þeirra upplýsinga.
Allar starfsstöðvar félagsins starfa samkvæmt GÁMES hættugreiningu (Greining Áhættuþátta og Mikilvægra EftirlitsStaða), sem á ensku er skammstafað HACCP. Matvælastofnun (MAST) fer með eftirlit á öllum starfsstöðvum FISK Seafood og heldur félagið á nokkrum leyfisnúmerum ýmist til framleiðslu eða geymslu á afurðum. FISK Seafood hefur starfað samkvæmt International Food standard (IFS) síðan árið 2012 en ekki hefur ennþá verið unnt að taka út starfsemina eftir heimsfaraldurinn. Umsókn um úttekt hefur verið samþykkt af til þess bærum þriðja aðila sem áætlar að gera úttektina á árinu 2023.
- MSC (Marine Stewardship Council) – gild vottun
- IRF (Iceland Responsible Fisheries) – gild vottun
- IFS (International Food Standard) - í endurvottunarferli
Markaðsmál
Á árinu jók FISK Seafood eignarhlut sinn í sölufyrirtækinu Iceland Seafood International og um áramótin átti félagið 11,3% hlut í félaginu. Langstærstur hluti afurða félagsins er seldur í gegnum Icelandic Seafood og dótturfélag þess, Iceland Seafood Iberica. Stærstu viðskiptalönd félagsins fyrir léttsaltaðar og saltaðar afurðir voru Spánn, Ítalía og Grikkland. Sjófrystar afurðir af Arnari HU-1 voru seldar til Bretlands, Póllands og Bandaríkjanna. Afurðir félagsins rötuðu þó einnig á fleiri markaði, þá sérstaklega í Mið- og Norður Evrópu. Þurrkaðar afurðir voru helst seldar til Nígeríu. Allar afurðir félagsins sem fóru í útflutning voru fluttar sjóleiðina til markaðslandanna.
Félagið hefur útflutningsleyfi til ýmissa sérleyfismarkaða utan Evrópu:
- Landvinnsla Sauðárkróki (A404) – Brasilía, Kína og Evrasísusambandið.
- Arnar HU-1 (A365) – Kína, Suður-Kórea , Evrasíusambandið og Víetnam
Starfsemi FISK Seafood er háð nokkrum utanaðkomandi þáttum sem félagið getur lítil sem engin áhrif haft á. Meðal annars er hún háð menningu og neyslu í Suður Evrópu á framleiðsluafurðunum og hún er einnig háð kvótasetningu og lagaramma hvers tíma utan um sjávarútveg á Íslandi. Hér spilar einnig inn í efnahagsástand á okkar markaðssvæðum. Stríðsátökin í Úkraínu höfðu ekki bein áhrif á sölu afurða okkar þar sem þær eru hvorki seldar þar né í Rússlandi.
Fjárfestingar
Helstu fjárfestingar félagsins á árinu voru uppbygging á húsnæði sem mun hýsa Fiskmarkað Sauðárkróks að Sandeyri 2 á Sauðárkróki. Hefur sú framkvæmd gengið vel og var húsnæðið tekið í notkun á fyrsta ársfjórðungi 2023. Markmiðið með þessu samstarfi við öflugan fiskmarkað, sem rekinn er af Fiskmarkaði Snæfellsbæjar, er að hækka virði þess afla sem er landað og auka gæði með bættri flokkun og slægingarþjónustu. Með þessu skrefi teljum við að hingað muni leita fleiri smábátar til löndunar, að við fáum hærra verð fyrir þann fisk sem fer á markað og að fjárfestingin verði lyftistöng fyrir önnur fyrirtæki á svæðinu í sjávarútvegi og vöruflutningum.
Nýsköpun
FISK Seafood er virkur þátttakandi í verkefnum tengdum vísindarannsóknum og nýsköpun í sjávarútvegi sem nýtast bæði nærsamfélaginu og alþjóðasamfélaginu. Á árinu var skrifað undir samning um frumhönnun á nýju skipi sem mun búa yfir allri nýjustu og bestu tækni sem völ er á við nýbyggingu skips. Í þeim efnum er m.a. horft til nýs orkugjafa, sparneytni í orkunotkun og vistvænnar rafmagnstengingar í landi. FISK Seafood leggur sitt af mörkum í samstarfsverkefnum SFS (Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi) og tekur þátt í starfi vinnuhóps SFS sem leitar leiða til að draga úr kolefnislosun sjávarútvegsins.
Höfnin
Engum dylst að höfnin á Sauðárkróki er barn síns tíma og stendur nú þegar samkeppnishæfni FISK Seafood, og raunar fleiri atvinnugreinum í Skagafirði, fyrir þrifum. Bæði flutningaskip og skemmtiferðaskip hafa stækkað og þau nýjustu geta fæst athafnað sig í höfninni. Sama gildir um fyrirhugaða endurnýjun FISK Seafood í fiskveiðiflota sínum. Orkuskiptin og aðrir umhverfisþættir kalla af ýmsum ástæðum á stærri fiskiskip. Ein þeirra er sú einfalda staðreynd að vistvænt eldsneyti tekur þrefalt meira pláss um borð heldur en olían. Þess vegna verða skipin að stækka. Án þess að nútímavæða innviðina, þ.e. að dýpka og stækka höfnina, mun flotinn úreldast og glata samkeppnishæfni sinni.
Um leið og ákvörðun hefur verið tekin um endurbætur á höfninni mun FISK Seafood einnig bretta upp ermar í stórhuga umbótaverkefnum á Eyrinni. Fyrirhuguð nýbygging hátæknifrystihúss er þar fremst í flokki og það liggur í augum uppi að tilhögun hennar og umfang ræðst talsvert af því hvort fjárveiting fáist til hafnarframkvæmdanna á allra næstu misserum.
Samfélagsspor
Samfélagsspor samstæðunnar gefur heildstæða mynd af öllum opinberum gjöldum og sköttum sem greiddir eru til hins opinbera vegna starfsemi félagsins. Samstæðan greiddi 1.631 milljón króna í skatta og gjöld á árinu 2022. Einnig innheimti samstæðan 1.265 milljónir kr. á árinu af starfsfólki fyrir ríkissjóð. Samfélagsspor starfseminnar árið 2022 er því alls 2.895,6 milljónir króna.
Skattspor FISK Seafood samstæðu | 2021 | 2022 |
---|---|---|
Tekjuskattur | 381.553 | 243.740 | Tryggingagjald | 221.229 | 289.604 |
Mótframlag í lífeyrissjóði | 323.014 | 396.435 |
Veiðigjöld | 414.517 | 394.276 |
Gjöld til hafnarsjóða | 120.871 | 147.888 |
Aðrir skattar og gjöld | 159.151 | 66.730 |
Kolefnisgjald | 93.270 | 91.899 |
Innheimtir skattar vegna einstaklinga | 946.135 | 1.265.050 |
Samtals | 2.566.110 | 2.803.722 |
Tölur í þúsundum króna. |
Heimsmarkmiðin
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun voru samþykkt af fulltrúum aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna árið 2015. Markmiðin eru samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinna efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu. Mikilvægt er að ríki horfi til markmiðanna á heildstæðan hátt, því þau eru margþætt og krefjast skipulagðrar vinnu af hálfu stjórnvalda en einnig þátttöku og samstarfs ólíkra hagsmunaaðila.
Á undanförnum árum hefur FISK Seafood þróað stefnu félagsins í ýmsum málum. Sú markmiðasetning, ásamt vottunum sem félagið hefur, styður við mörg af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. FISK Seafood tók einnig þátt í mótun samfélagssáttmála Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og skuldbatt sig um leið til þess að uppfylla hann. Heimsmarkmiðin sem félagið tengir sig sérstaklega við eru eftirgreind:
Heilsa og vellíðan
FISK Seafood hefur á síðustu árum þróað stefnu í öryggis- og vinnuverndarmálum. Félagið leggur áherslu á að auka markvisst öryggi starfsumhverfis og lágmarka slysahættu við störf. Við leitum leiða til að tryggja öryggi og heilsusamlegt vinnuumhverfi þar sem einelti, ofbeldi og kynbundið eða kynferðislegt áreiti er óheimilt
Jafnrétti kynjanna
Árið 2020 hlaut FISK Seafood jafnlaunavottun til staðfestingar þess að fyrirtækið tryggir jöfn tækifæri og jafnrétti kynja til ábyrgðar og launa. Við líðum ekki mismunun og virðum fjölbreytileika. Hvers kyns misbeitingu vegna kyns, kynhneigðar, ólíks uppruna o.s.frv. er hafnað. Félagið lætur sér annt um jöfn tækifæri foreldra til töku fæðingarorlofs og samneytis við fjölskyldu sína.
Góð atvinna og hagvöxtur
FISK Seafood kappkostar að auka framleiðni með tækninýjungum og uppbyggingu innviða. Með þessu viljum við stuðla að afkastamikilli framleiðslustarfsemi þar sem fullvinnsla og fullnýting hráefnis á sér stað í sátt við umhverfi og samfélag. Félagið er meðvitað um það hlutverk sitt að opna fólki með skerta starfsorku leiðir að atvinnutækifærum.
Nýsköpun og uppbygging
FISK Seafood er virkur þátttakandi í verkefnum tengdum nýsköpun í sjávarútvegi. Félagið vill gjarnan tengjast enn frekar vísindarannsóknum og athugunum á áhrifum sjávarútvegs á auðlindir og umhverfi.
Ábyrg neysla og framleiðsla
FISK Seafood kappkostar að nýta allt hráefni til hins ýtrasta og áframvinna hliðarafurðir eins og unnt er. Það sem eftir stendur er sent til frekari vinnslu utan fyrirtækisins. Áherslur hringrásarhagkerfisins eru jafnt hafðar til hliðsjónar í framleiðsluferlinu sem og í eigin neyslu og aðföngum.
Aðgerðir í loftlagsmálum
FISK Seafood hefur unnið að breytingum og endurnýjun í skipaflotanum á síðustu árum. Haft hefur verið að leiðarljósi að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis eins og kostur er. Einnig hefur félagið nýtt tækifæri til þess að skipta út ósoneyðandi kælimiðlum. Stefnt er að því að auka hlutdeild vistvænna orkugjafa sem eru raunhæfir og samkeppnishæfir.
Líf í vatni
Það er hagsmunamál þjóðarinnar, og raunar heimsbyggðarinnar allrar, að nýting fiskistofna sé sjálfbær. FISK Seafood setur sér það markmið að ganga vel um auðlindir hafsins með gagnsæjum og rekjanlegum fiskveiðum og fara í hvívetna að lögum í allri starfsemi sinni. Til að staðfesta hollustu félagsins við sjálfbæra nýtingu auðlinda og ábyrgar fiskveiðar hefur FISK Seafood hlotið IRF vottun (Iceland Responsible Fisheries). Einnig er FISK Seafood og Soffanías Cecilsson með MSC rekjanleikavottun (Marine Stewardship Council) í skipum og vinnslum. Sjómönnum samstæðunnar er skylt að fylgja eftir V. viðauka MARPOL samningsins.